Á sunndaginn síðasta var hátíðin 2010 MTV Movie Awards haldin í Los Angeles…
…Nýja Twilight myndin vann verðlaunin “Besta myndin” og krakkarnir í myndinni unnu fullt af verðlaunum, meðal annars fyrir besta kossinn.
Katy Perry, Snoop Dogg, Jennifer Lopez og Christina Aguilera sáu um skemmtiatriðin.
Ég fylgdist ekki með sjálfri hátíðinni en skoðaði auðvitað tískuna á rauða dreglinum, reyndar varð ég fyrir smá vonbrigðum en það voru nú nokkrir vel klæddir á svæðinu. Whitney Port var til dæmis í fínum kjól að mínu mati.
Hér eru nokkrar myndir af stjörnunum sem létu sjá sig á hátíðinni:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.