Í gærkvöld var haldin glæsileg veisla á veitingastaðnum Nauthól í tilefni af komu nýrrar fylgihlutalínu Gyðju Collection.
Þar frumsýndi hönnurinn Sigrún Lilja Guðjónsdóttir meðal annars fallega skó sem hún kallar Anitu, en samskonar skóm klæddist Hollywood leikkonan Anita Briem þegar hún gekk í það heilaga á grísku eyjunni Santorrini.
Skórnir eru gerðir úr íslensku fiskiroði og Swarovski kristöllum og er útkoman einstaklega falleg og sérstök.
Það var margt góðra gesta í teitinu, meðal annars Dísa í WorldClass, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona, Ingibjörg Einarsdóttir fegurðardrottning, María Valdimarsdóttir frá Youngblood og margar fleiri.
Smelltu hér til að sjá myndir úr veislunni, flottir skór, glæsilegar dömur, góð stemmning og guðdómlegir fylgihlutir:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.