Rick Genest, 26 ára, betur þekktur sem Rico the Zombie er með húðflúr yfir allann líkaman og Andrej Pejic, 20, hefur heillað tískuheiminn með kvenlegri fegurð sinni.
Saman mynda þeir eitt það furðulegasta par sem sést hefur en nú hefur Brasilíska merkið Auslander fengið þá kappa til að pósa fyrir sig í nýrri herferð.
Útkoman ætti að gulltryggja athygli en Zombie drengurinn baðaðist ljósi frægðarsólarinnar eftir að hafa leikið í myndbandi fyrir Lady Gaga.
Guðný skrifaði um hann í þessari skemmtilegu færslu þar sem hann þrífur af sér hyljara með góðum árangri en Vala hefur áður greint frá Andrej hinum íðilfagra.
Tjékkitt…
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.