Við eigum það ALLAR sameiginlegt að bíða spenntar eftir sumrinu með sínum unaðslegu sólríku stundum.
Þá strollum við um á stuttbuxum, spókum okkur á Austurvelli, setjumst á kaffihús með krosslagða fætur og hvítt, eða liggjum í grasinu og röbbum við vini og vinkonur þar til sólin ákveður að setjast og senda okkur á ný mið.
Zara er með fallegt úrval af sumarfatnaði í lookbook vorsins 2012… eitthvað fyrir okkur allar, á aldrinum 15-65. Áhrifa gætir frá níunda og tíunda áratug síðustu aldar, rokk og rómantík í bland. Fallegt!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.