Pedro Garcia er spænskt skóhönnunarmerki sem hefur verið starfandi frá árinu 1925.
Það er ekki á hverjum degi sem ég fæ léttan sæluhroll yfir fallegum skófatnaði en það gerðist þegar ég skoðaði þetta fínerí. Það er eitthvað svo skemmtilega ævintýralega fallegt og kynþokkafullt við þessa skó. Væri alveg til í að eiga eins og nokkur pör af þeim.
Skórnir kosta flestir á bilinu 25-45 þúsund krónur og mér skilst að það sé hægt að fá þá hjá Sævari Karli í Reykjavík og á netversluninni net-a-porter.com
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.