Í myrkri og kulda vetrarins er erfitt að setja sig í vorfílinginn en vortískan lætur samt ekki bíða eftir sér þó sólin geri það.
Hvernig væri að koma smá lit í lífið? Ég tók saman litríkustu og mynstruðustu fötin fyrir vorið.
Dásamlegir kjólar og flottir samfestingar til að draga okkur upp úr skammdegisþunglyndinu:
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.