Victoria Beckham sýndi vor- og sumarlínu sína fyrir næsta ár á tískuvikunni í New York í dag.
Victoria hefur á stuttum tíma náð miklum vinsældum í tískuheiminum og sést það einna best á því að stærstu stjörnur tískubransans voru mættar á fremsta bekk til að fylgjast með því sem frú Beckham hafði upp á að bjóða.
Þessi lína hennar, eins og þær allar, er klassísk, klæðileg og kvenleg. Hún hefur þó tekið litla áhættu hvað litina varðar, svartur og hvítur eru ráðandi litir þó vínrauður og bleikur sjáist inn á milli. Lítið er um munstur en þau sem sjá má eru geometrísk og látlaus.
Feðginin Harper Seven og David Beckham létu sig ekki vanta á sýninguna og fylgdust spennt með.
Victoria Beckham að sýningu lokinni. Alltaf smart.
Sjáðu myndir af sýningunni allri hér fyrir neðan!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com