Ég rakst á Velvet.is um daginn fyrir tilviljun og var hissa að ég skula ekki hafi vitað af þessari verslun fyrr.
Velvet.is selur föt, skó og skart í anda Nasty gal og Asos. Verðin eru mjög góð og allt ótrúlega flott. Ég keypti mér nokkra hluti og var búin að fá þá í hendurnar nokkrum dögum síðar. Mjög góð þjónusta. Skemmtilegt að segja frá því að stelpan sem heldur uppi síðunni er ekki nema 19 ára gömul.
Maður reddar sér í kreppunni segi ég nú bara!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.