Um daginn birtist hér færsla um hárið og hvað pínu túbering getur gert mikið fyrir flatt og þreytt hár. Ég rakst svo á þennan krúttlega myndaþátt í ástralska Vogue sem fjallar um ‘tvíbura’ sem greinilega taka túberinguna alla leið…
…Hann er mjög flottur, risa 60’s hár, 60’s förðun og falleg föt. Þessar sætu ‘tvíburasystur’ punta sig fyrir allan peninginn og fara í sitt fínasta púss til að fara til dæmis í boccia, sólbað og út í fjöru. Týpurnar sem vakna snemma til að hafa sig til en eru svo ekki að fara að gera neitt. Gaman af því!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.