Það eru engir þættir sem ég elska meira en Sex and the City – ég get horft á þá aftur og aftur! Og myndirnar líka.
Fáir karakterar hafa verið jafn miklir trendsetterar og Carrie Bradshaw. Jafnvel þótt þættirnir séu frá “vafasömu” tískutímabili eru þær alltaf FAB!
Ég á nokkur uppáhalds Carrie átfitt. Mig langar að deila nokkrum með ykkur. J’Adore bolurinn og fallega pilsið úr annarri SATC myndinni er alltaf í uppáhaldi.
Svo furðulega falleg blanda og svo mikið Carrie!
Ó, hvað ég þrái svona bol!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.