Að vera í töff sokkum við bæði opna og lokaða hælaskó er ótrúlega heitt í dag. Rihanna er t.d. í sætum sokkum við rauða hælaskó í myndbandinu við lagið hennar Man down.
Það er ekki svo langt síðan að nær allar ungar stúlkur voru berleggja í uppháum sokkum við pils eða kjóla, núna eru það bara lágir sokkar, flottir á litinn eða sætir blúndu sokkar. Mér finnst þetta ótrúlega töff og líka gaman að þetta er svona aðeins öðruvísi! Virkar vel berleggja og líka við leggings eða sokkabuxur.
En stuttir sokkar voru mjög vinsælir hérna áður fyrr. Ég man eftir dúkkum sem ég átti. Þær voru margar í mjallahvítum sokkum og lakksóm. Og á jólunum eða í afmælisveislum þá vildi mamma að ég færi í hvíta sokka með blúndu efst við spariskóna mína.
Það er svo gaman að sjá hvað allt mögulegt kemst í tísku aftur og aftur.
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.