Victoria Törnegren er sænskur tískubloggari sem fer alveg með mig .. hún er eiginlega óþægilega töff.
Ég er ekki sammála öllu sem hún gerir. Ég er ekki mikið hrifin af rifnum gallabuxum, rúllukraga og leður stuttbuxum við peysu eða frakka en hún sjálf virðist “púlla” þetta. Ég veit að minnsta kosti ekki um neinn sem kemst upp með rúllukraga jafn vel og Törnegren.
Myndirnar tala sínu máli og hér er svo bloggið hennar sem er alveg þess virði að fylgjast með.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.