Það er eitthvað við stuttermaboli með myndum framan á eða einhverskonar skrauti… þeir virka alltaf, sama hvað þú ert gömul eða hvaða stíl þú aðhyllist.
Allar dömur ættu að eiga gott úrval af T-bolum, eða stuttermabolum, í fataskápnum. Þeir ganga bæði undir flottum blazer jakka eða gollu og á sumrin eru þeir fínir bara einir og sér. Og ef þú ert í vandræðum með að klæða þig, prófaðu þá gallabuxur, flottan bol, einfaldan blazer eða leðurjakka og svo flotta hæla. Málið er dautt.
Hér er samansafn nokkurra bola sem ég fann hjá Glamour Magazine. Bolirnir frá All Saints eru æðislegir svo ekki sé minnst á Dolce Gabbana…
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.