Esmeralda Nilsdotter er sænskur bloggari með fallegt nafn og flottan stíl, ekki mjög fríkaðan en tekst þó alltaf að gera allt smart. Hún er ein af þessum sem er flott í ÖLLU.
Svo má ekki gleyma að minnast á hárið hennar sem er einstaklega sítt, fallegt og heilbrigtð. Esmeralda er meðal vinsælustu bloggara í Svíþjóð en þar vantar ekkert upp á að fólk sé smart og þaðan koma margir frábærir tískubloggarar.
Ég fíla Esmeröldu alveg í botn – enda eigum við mikið af alveg eins fötum. T.d fallegu sokkabuxurnar sem hún er í á einni myndinni og Cheap monday buxurnar sem eru svolítið í anda Goth stefnunnar… ég elska þær!
Myndir af skvísunni:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.