Fyrir utan það að kaupa ansi mörg tískutímarit á mánuði þá á ég það til að hanga yfir ýmsum tískubloggum. Það er svo gaman að sjá hvernig stelpur eins og ég og þú túlka nýjustu tískustrauma og maður fær svo miklar hugmyndir hvernig maður sjálfur getur túlkað þær á sinn eigin hátt.
Seinustu vikur hef ég tekið eftir nýju trendi sem er að koma sterkt inn og á eflaust eftir að verða mjög vinsælt í sumar, tie dye gallabuxur. Þetta trend er ekkert smá skemmtilegt og gefur klassísku gallabuxunum sem við eigum allar skemmtilega tilbreytingu. Ef þú ert ekki tilbúin að eyða pening í eitt stykki af svona gallabuxum þá mæli ég með að þú kíkir á ÞETTA . Þarna er sýnt hvernig þú getur tekið gamlar gallabuxur sem þú notar ekki lengur og gefið þeim nýtt líf. Auðvelt og ódýrt!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.