Systurnar Danielle og Laura Kosann, eigendur The New Potato, tóku saman lista yfir flíkur sem þær telja þær allra mikilvægustu fyrir borgarskvísur að eiga í fataskápnum.
Listinn samanstendur af 37 klassískum flíkum sem flestar ganga saman. Lykilatriðið hér er að við eigum ekki að þurfa að eiga nema 37 flíkur. Skápurinn okkar á helst að samanstanda af því sem við notum.
Þessi skyrta þykir mér alveg einstaklega fallega hönnuð.
Victoria Beckham Denim Overzied Shirt
Svartar gallabuxur í carrot sniði ganga við margt. Ég nota mínar óspart, geng þær út og kaupi svo aftur.
Rag & bone High-rise Skinny Black Jeans
Ég er algjör sökker fyrir nude skóm og þá sérstaklega í þessu sniði.
Hér má sjá restina af listanum. 33 gullfallegar og skemmtilegar flíkur. Ég hef sett lýsingu undir hverja flík fyrir sig svo þú getir hæglega fundið þær á vefverslunum með því að setja inn í leitarstiku Google.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.