Þær Marta, Margrét og Anna Maggý halda úti fersku og skemmtilegu tískubloggi í samstarfi við skapandi sumarstörf hjá hinu húsinu.
Þær gera myndaþætti þar sem þær taka myndir og stílisera sjálfar. Ótrúlega flottar myndir hjá þessum ungu stelpum! Þær taka skemmtilegar streetstyle myndir, fara í heimsóknir og allskyns skemmtilegt.
Áfram skapandi sumarstörf segi ég nú bara!
Hér er bloggið.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.