Hver segir að stærðin skiptir máli þegar kemur að því að vera tískudrottning eða kóngur?
Þessi yndi hér eru gjörsamlega búin að stela tískuhjarta mínu og eiga líklega eftir að stela þínu líka.
Þessir snillingar fengu að öllum líkindum einhvern fullorðinn til að aðstoða sig við fatavalið en töff eru þau enga síður. Minna mig einnig óneitanlega á litla sjálfa mig sem hafða alltaf mjög mikla skoðun á því í hverju hún vildi vera frá því hún kunni að tala. Mér fannst ég örugglega jafn smart og þessir krakkar þegar ég var búin að fá mínu fram en satt að segja er ég ekki svo viss.
Þessir krakkar rokka hins vegar tískuna og fá milljón rokkstig frá mér fyrir!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.