MANGO hefur verið eitt af mínum uppáhalds merkjum um nokkurt skeið.
Flíkurnar eru kvenlegar, saumaðar úr gæðaefnum og á sanngjörnu verði.
Ég á t.d. enn þá gollu sem ég keypti mér haustið ’07 og klassískan svartan blazer frá haustinu ’09 sem sér varla á. Það er fátt leiðinlegra en að kaupa sér föt sem hnökra eftir litla sem enga notkun.
Victoria’s Secret módelið Miranda Kerr er andlit MANGO og vorlínan í ár lofar mjög góðu.
Hér er lítil samantekt á því nýjasta frá MANGO, flíkur sem mér finnst vera einstaklega fallegar og velheppnaðar.
Njótið vel!
____________________________________________________________
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.