Skósíðir kjólar, eða svokallaðir Maxi dress kjólar, eru frábær valkostur á sumrin.
Þeir eru glæsilegir, klæða flestar konur vel, eru dásamlega þægilegir og koma í ótal litum og útgáfum. Þú getur notað Maxi kjólinn þinn þegar þú skreppur með vinkonu í miðbæinn til að njóta sólarinnar og þú getur farið í honum í grillveislur og brúðkaup. Paraðu kjólinn við sjal, eða blazerjakka og veldu liti sem fara þér vel.
Vertu líka óhrædd við að nota skart, setja fallegt lakk á táslurnar og leyfa hárinu að flaksa… Gleðilegt sumar!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.