Sølve Sundsbø er norskur tískuljósmyndari sem hefur fengið verðskuldaða athygli undanfarið og unnið dásamlega tískuþætti fyrir öll helstu tískublöðin. Sølve nær að fanga tísku frá öðrum vinkli en venjulega og myndir hans eru bæði ævintýralegar og listrænar.
Mér þykir alltaf gaman að reka augun í tískuþætti frá honum en hann er þó með svo fjölbreyttan stíl að þegar maður heldur að maður þekki stílinn hans og geti séð strax að myndir eru eftir hann þá sér maður eitthvað allt annað og nýtt.
Frábær ljósmyndari sem gaman er að fylgjast með!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.