Það er komið sumar! Ég rakst á þennan sumarlega og fallega myndaþátt í júní tölublaði af Elle Mexico…
…Þarna er það módelið Mekah Jenkins sem spókar sig um á girnilegri strönd í flíkum frá meðal annars Versace, Armani, Miu Miu og Chanel. Það væri nú ekki leiðinlegt að eiga svona fín strandarföt.
Ljósmyndarinn sem ber ábyrgð á þessum fallegu ljósmyndum er Arnaldo Anaya-Lucca.
Eru ekki allir í sumarfíling?
___________________________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.