Í sumar geta tásurnar okkar verið einstaklega hamingjusamar því nú snýst tískan um litríka strigaskó… Þeim mun skrautlegri sem skórnir eru því flottari eru þeir!
Þetta er auðvitað algjört æði því hver vill ekki slaka örlítið á háu hælunum og sveifla tásunum í léttum dansi í súper þægilegum skóm?
Ég tók saman nokkrar myndir af eðal fallegum pörum en vinsælustu skórnir í dag eru Converse, Nike free, Camper og Miu Miu glamúr glitter skórnir eru agalega heitir.
Auðvitað ganga hvaða strigaskór sem er en þetta eru svona þeir sem ég væri alveg til í að bæta í mitt safn.
Njótið sumarsins í þægilegum skóm því það er bara töff!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.