Ég held að flestir geti verið sammála mér þegar ég segi að allavega eitt par af góðum strigaskóm sé ‘möst’ í fataskápinn…
…Þá ættu þægindi auðvitað að vera í fyrirrúmi en auðvitað sakar ekki að hafa skóna vel útlítandi.
Hér fyrir neðan er samansafn af nokkrum einstaklega flottum strigaskóm þar sem útlitið er sko ekki aukaatriði. Skórnir koma úr öllum áttum en eiga það allir sameiginlegt að vera í dýrari kantinum.
Margir hverjir kosta í kringum 60.000 krónur enda sumir skreyttir glimmeri, Swarovski kristöllum, silfri og gulli!
Þessir strigaskór eru sko flottir…en ætli þeir séu eins þægilegir og strigaskór ættu að vera?
Sannkallað augnakonfekt!
_______________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.