Við pjattrófur fórum út að borða á tapas húsið nú fyrir stuttu og Guðný pjattrófa mætti með eitt fallegasta hálsmen sem ég hef séð!
Hálsmenið má sjá hér að ofan. Hún fékk það í Zöru. Það kostar heilar 9000 kr. sem ég tími ekki þótt það sé svona fallegt svo ég var heldur betur ánægð þegar ég fann svipað – neon gult! – í Newlook í London á um 3000 kr.
Svona hálsmen geta gert svo ótrúlega mikið. Ef maður vill vera fínn hendist maður bara í svört föt og hálsmenið á og VOILA! Glamdrottning. Svo er alveg hægt að nota það við gallabuxur og plein jakka dagsdaglega. Það geri ég a.m.k!
Hér eru nokkur stór og fín hálsmen…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.