Það er náttúrulega fátt kjánalegra en að mæta í nýja megasúpertrendí kjólnum sínum í partí og það fyrsta sem þú sérð þegar þú labbar inn er stelpa í eins kjól…
…Sem betur fer hefur maður ekki oft lent í því en stjörnurnar lenda reglulega í þessu. Þá fara auðvitað allir að bera þær saman og spyrja sjálfan sig; ‘Hvor er flottari’…örugglega ágætlega pirrandi fyrir stjörnurnar að rekast á svona könnun á netinu og vera að grút-tapa! Hér fyrir neðan eru myndir af nokkrum tísku-systurum og auðvitað eru sumar að lúkka betur en aðrar í sama kjólnum.
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að sjá þær stórar og dæmi svo hver fyrir sig.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.