Kirsten Dunst, Leighton Meester, Rachel Weisz og goðsagnir á borð við Elizabeth Taylor hafa allar átt í eldheitu fagurkerasambandi við Bulgari.
Bulgari kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir 128 árum en segja má að Elizabeth Taylor hafi komið skartgripunum á kortið. Elizabeth var vel þekkt fyrir ástríðu sína á gulli og demöntum og sumir segja að eina ítalska orðið sem hún kunni hafi verið Bulgari.
Richard Burton gaf henni hring skreyttan emerald steinum og demöntum en það var bara byrjunin. Bulgari og Burton þurftu að mætast með seðlaveskið nokkuð oft áður en þetta ofurdramatíska par skildi að skiptum í síðasta sinn.
Meðan önnur merki eiga sína hápunkta virðist Bulgari alltaf standast tímans tönn en sú síðasta sem vakti mikla athygli á skartinu var drottningin Madonna þegar hún kom fram á Super Bowl með síða og fallega lokka. Julianne Moore tekur sig líka einstaklega vel út með Bulgari skartið og Rachel Weisz var ekki síðri þegar hún pósaði með nýjustu ballveskin frá Bulgari sem eru meira skart en nokkurntíma taska.
Myndirnar segja meira en orðin…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.