Dolce & Gabbana hafa verið að gera allt vitlaust með stjörnumynstri uppá síðkastið.
Eins og gengur og gerist apa ódýrari merki eftir og nú sjáum við stjörnur allsstaðar! Mér finnst þetta kúl trend. Asos, Zara og Vila hafa m.a verið með flíkur með stjörnumynstri.
Alveg málið að splæsa í stjörnuflík fyrir veturinn!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.