Eins og eflaust margir vita fór tónlistarhátíðin Coachella fram um síðustu helgi. Hátíðin er árlegur viðburður og alveg sérlega vinsæll.
Sólin skein glatt á tónleikagesti og margt var um manninn. Margar skemmtilegar týpur heimsóttu hátíðina en hér er brot af því besta:
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com