Andlit á stórstjörnu á kjól eða bol, jú þetta kannast allir við en myndum við ganga í kjól með bleiku og órökuðu andliti Steve Bucemi?
Ég er svei mér þá ekki alveg viss. Hann er enginn A list-stjarna og heldur ekkert sérlega fallegur. Ekki svona á standard mælikvarða þó að ég sé viss um að margir Nick Cave aðdáendur laðist líka að Steve með sitt skakka bros.
Kjóllinn var til sölu hjá Black Milk en síðast þegar ég gáði var hann farinn af síðunni. Það er spurning hvort Steve sjálfur hafi keypt upp lagerinn?
Maður veit aldrei.
Meira af Black Milk HÉR.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.