Þessi svali myndaþáttur birtist í þýska september eintaki af Grazia…
…Þemað er rómantískur ‘biker’ stíll þar sem stelpulegum pilsum og kjólum er blandað saman á frábæran hátt við töffaralegar flíkur.
Stíleseringin er mjög góð að mínu mati en það er Nicole Schneider sem á heiðurinn að henni þar sem hún blandar saman mismunandi áferðum einstaklega vel.
Hér má sjá leður og silki saman sem sýnir bara að það er allt leyfilegt!
Ljósmyndarinn á bakvið myndavélina er Gyslain Yarhi og fyrirsætan með fallega hárið er Veneda Bundy. Gott teymi hér á ferð!
Ótrúlega vel heppnaður myndaþáttur!
_____________________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.