Eins gaman og það er að fletta í gegnum myndir af tískusýningunum sem fram fara á tískuvikunum finnst mér margfallt skemmtilegra að skoða myndirnar af götutískunni.
Hér eru tvö dress frá New York og Mílanó…
Afslöppuð tíska í New York
Einfaldleikinn er oftast bestur. Þetta dress er hægt að herma eftir án þess að fara út í búð, allt frá netverslunum:
Skyrta: net-a-porter.com
Buxur: net-a-porter.com
Skór: Michael Kors frá net-a-porter.com
Clutch veski: asos.com
Sólgleraugu: asos.com
Leður og gallaefni í Mílanó
Annað frekar afslappað dress. Að þessu sinni blanda af tveimur vinsælustu efnunum um þessar mundir: leður og gallaefni.
Sólgleraugu: Ray Ban Wayfarer
Peysa: Zara
Pils: net-a-porter.com
Gallaskyrta: Vero Moda
Veski: Michael Kors
Hér er frekari innblástur frá tískudívum í New York, París, Mílanó, Svíþjóð og fleiri stöðum…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com