Miroslava Duma er rússnesk fashionista sem tekið er eftir hvert sem hún fer, enda með litríkan og skemmtilegan stíl sem gaman er að fylgjast með.
Mira ber af í klæðaburði á flestum þeim viðburðum sem hún sækir, en hún er dugleg að sækja alla helstu tískuviðburði hvar sem þeir fara fram í heiminum. Svona getið þið nælt ykkur í svipaðan stíl og þessi fyrrum ritstýra rússneska Harper’s Bazaar.
- Kápa: H&M
- Skyrta: Vila
- Pils: Topshop
- Hálsmen: asos.com
- Belti: Michael Kors
- Skór: New Look
Kvenlegt og smart.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com