Fötin frá Sonia by Sonia Rykiel eru bara dásamleg! Vor og sumarlínan er svo björt og falleg að maður fer hreinlega í sumarskap við að skoða myndirnar.
Mikið er um gula litinn hjá henni í ár og hann er mjög fallega gulur, bjartur og hreinn. Ég var hreinlega komin á Austurstrætið, á útikaffihús með ótrúlega fallegan drykk í vel skreyttu glasi þegar ég skoðaði þessar myndir. Sól og sumar eru einkunnaorðin hérna, dásamleg lína!
Fötin frá Sonia Rykiel eru þægileg, smá öðruvísi og virka frá ári til árs. Þannig að ég mæli með því að kíkja á útsölurnar í KronKron og næla sér í einn kjól áður en útsölunni líkur. (Tek það samt fram að ég hef akkurat enga hagsmuna að gæta þegar ég skrifa þetta. Finnst bara þessi hönnuður með þeim flottari í dag).
Nælið ykkur í smá sumaryl með því að kíkja á myndirnar, njótið vel…
__________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.