FYLGIHLUTIR: Ég á nokkra góða vini og vinkonur sem fara reglulega í eitthvað sem þau kalla svett en það ku vera gríðarleg andleg upplifun og hreinsun að hætti indíána.
Þegar þau eru búin í ‘svetti’ tekur stundum við dans þar sem mannskapurinn lætur á sig einskonar gleðigleraugu í LITUM og svo er dansað. Nú eru nokkrar kvennanna í þessum hópi heldur svag fyrir hönnun og fíneríi og því datt mér í hug hvort þessi gleraugu hérna væru ekki eitthvað fyrir þær…
Að öllu gríni slepptu þá er þetta meðal þess sem við munum sjá næsta vor og sumar en búast má við mikilli litadýrð, bæði í fatnaði og fylgihlutum.
Smelltu…
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.