Vefsíðan WhoWhatWear hefur tekið saman lista yfir þær konur sem að þeim finnst hafa skarað fram úr í klæðaburði á rauða dreglinum síðastliðið ár.
Á listanum má sjá mörg þekkt nöfn. Leikkonur, söngkonur og módel sem flestir þekkja. Þar á meðal er Óskarsverðlauna leikkonan Jennifer Lawrence, súpermódelin Miranda Kerr og Kate Moss og leikkonurnar Jessica Alba og Zooey Deschanel svo fáeinar séu nefndar.
Það kemur líklega fáum á óvart að Beyonce sé á þessum lista enda ávallt súper smart hvert sem hún fer. Hún er þó ekki sú eina úr Knowles fjölskyldunni því systir hennar Solange þykir einnig ein af 50 smekklegustu konum heims. Fleiri systur má finna á listanum, allar þrjár Olsen systurnar fá sitt sæti, Ashley, Mary-Kate og Elizabeth. Þá eru Dakota og Elle Fanning og Rooney og Kate Mara þar líka.
Smekklegheitin eru þessum systrum greinilega í blóð borin.
Sjáið listann í heild sinni í myndaalbúminu hér að neðan…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com