Vinsælt trend í dag er að binda köflótta flannel skyrtu um mittið, já eða gallaskyrtu eða hverskyns skyrtu. Mér finnst þetta einstaklega töff, setur mikinn svip á heildarlúkkið!
Margar hollywood stjörnur og tískudívur hafa sést skarta þessu lúkku upp á síðkastið. Meðal annars Kim Kardashian, Miranda Kerr og Alexa Chung.
Sjálf var ég komin með eina bláköflótta í hendurnar í H&M um helgina en þolinmæðin mín réð ekki við röðina við kassann – hún verður þó líklega orðin mín fljótlega svo ég get stolið þessum stíl líkt og skvísurnar á myndunum hér fyrir neðan.
Töff stíll sem skapar karakter!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com