Það er ekki hægt að fá sig sadda af fallegum skóm
Nú hafa flestir skóhönnuðir og fatahönnuðir heims sent frá sér sumarhönnun fyrir sumarið 2013 og útkoman er fáránlega flott! Litirnir, formin og karakterinn í hverju pari er algjörlega dásamleg samsetning!
Ég tók saman nokkur pör frá Alexander McQueen, Christian Louboutin (uppáhaldinu mínu), Dsquared2 og Dolce & Gabbana og þeir eru hver öðrum fallegri. Brjáluð fegurð fyrir auga og tær..
Algjörir drauma konfektmolar augans!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.