Sarah Jessica Parker hefur hannað skólínu í samstarfi við Manolo Blahnik sem væntanleg er í búðir vestanhafs þann 28. febrúar næstkomandi.
Manolo Blahnik var, eins og margir vita, uppáhalds skómerki Carrie Bradshaw sem Sarah lék í Sex and the City þáttunum ódauðlegu. Hér í myndbandinu að neðan getið þið séð sneak peek af línunni.
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=7qMwnp17bDs[/youtube]
Verðinu verður stillt í hóf en skóparið mun kosta á bilinu 22.000 til 56.000 krónur. Auk þess hefur leikkonan hannað töskur sem munu kosta allt að 32.000 krónur.
Mikið sem ég hlakka til að sjá alla skólínuna og þvílíkur draumur sem það væri að eignast SJP skó!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com