Nú er sumarið mætt í öllu sínu veldi. Laufin smeygja sér fram á trjágreinunum og grasið verður grænna með hverjum deginum.
Sólin hækkar á lofti og fataskápurinn okkar verður léttari um leið. Við drögum fram kjólana og opnu skóna og kuldaskór og dúnúlpur fara sína leið inn í geymslu.
Vor og sumar 2012 eru opnir skór allsráðandi. Fíngerður hæll og band um ökklann og yfir ristina. Allir regnbogans litir og fjölbreytt og skemmtileg mynstur þó snáka og eðluskinns og blómamynstrið sé mest áberandi.
Sjáðu bara – og lækaðu þína uppáhalds…
_____________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.