Játning…
ég elska, elska, elska skóna frá Dior..
…get sjaldan staðist fallega hannaða hluti og á eitt par af fallegum hælaháum Dior skóm. Mér áskotnuðust skórnir fyrir nokkrum árum en það var vinkona sem starfaði hjá DIOR sem útvegaði mér parið.
Brúnir háhælaðir úr mjúku leðri með “dior skrauti” hangandi á hliðinni og þótt þeir séu háhælaðir þá eru skórnir svo ómótstæðilega þægilegir og fallegir að mig hefur lengi dreymt um að eignast annað par frá Dior.
Þangað til draumur minn rætist þá horfi ég á þetta myndband sem sýnir ómótstæðilega og afar kvenlega skó fyrir skófíkla eins og undirritaða-því það er gott að láta sig langa og dreyma.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=KWdVQt5bmeo[/youtube]
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.