Þessi frábærlega ‘glamúröss’ myndaþáttur birtist í Please Magazine á dögunum….
…Það er fyrirsætan Anna Sophie Monrad sem fær að ‘pósa’ með öllu þessu dásamlega skarti og klæðast fallegum flíkum í leiðinni sem koma meðal annars frá Stella McCartney, Valentino og Louis Vuitton.
Það mætti halda að slagorð stílistans sé ‘því meira því betra’ því fyrirsætan ber armband, hálsmen (stundum nokkur), hring og hárskraut á flestum myndunum. Og útkoman er æði!
Algjörlega gómsætt!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.