Þessi æðislegi ‘retro’ myndaþáttur var birtur á dögunum í tímaritinu How to Spend It…
Það er ljósmyndarinn Kevin Sinclair sem ber ábyrgð á þessum hressu myndum sem sýna vægast sagt smart konu að sóla sig í hönnun frá meðal annars Dolce & Gabbana, Tsumori Chisato, Rochas, Prada, Chanel og Versace.
Þrátt fyrir nútímalega hönnun þá gefa þessar klassísku eldrauðu varir og elegant hárgreiðslan smá pinup-legan fílng í útkomuna.
Frábært og sumarlegt!
_________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.