Sex and the City leikkonan Sarah Jessica Parker fékk Vogue í heimsókn til sín á dögunum og fengu þeir að smella af nokkrum myndum í herbergi tvíburadætra þeirra hjóna. Marion og Tabitha heita þær og eru tveggja ára.
Sarah á fyrir soninn James með eiginmanni sínum Matthew Broderick. Hún segir m.a. að líf hennar og Carrie Bradshaw séu gerólík, hún hafi elskað að leika hana þar sem hennar líf gerbreyttist eftir þáttaraðirnar en hún sé ekkert lík skósjúku persónunni úr þáttunum og að hún velti ekki fyrir sér fatnaði allan daginn.
Myndirnar eru eftir Mario Testino.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.