SAINTS er ný verslun í bæði Kringlunni og Smáralind sem selur fatnað, skart, klúta, töskur og bráðlega skó og undirföt fyrir konur á öllum aldri.
Verðin í búðinni eru góð en algengt verð fyrir t.d. kjóla er á bilinu 7-12.000 kr. Facebook síðuna má finna HÉR en sjálf er ég að vinna Saints og því vel inni í málum…
Hér er smá brot af því sem finna má í Saints…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.