Hin sænska Loreen sem tekur þátt í Eurovision með lag sitt Euphoria hefur gjörsamlega slegið í gegn og spá henni margir sigri.
Það vita það þó ekki allir að þegar Loreen slakar á á sundlaugarbakkanum í Bakú þá er hún í sundbol frá Eygló.
Loreen kom við í showroom sem sýnir fatnað Eyglóar í Stokkhólmi og valdi sér meðal annars þennan frumlega og flotta sundbol til að klæðast í Bakú.
Ég var einmitt búin að fjalla um það fyrir stuttu að sundbolur Eyglóar væru með því heitasta fyrir sumarið og svo mátti sjá í síðasta Nude Magazine að stílistarnir Anna Clausen og Ellen Lofts voru á sömu skoðun, ég held svei mér þá að Loreen hafi sannað það!
Sundbolina má nálgast í Kiosk á Laugavegi 65.
Gleðilegt Eurovision og Heja Sverige!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=Z4PMQB5zmAU[/youtube]
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.