Þessar sumarlegu myndir af fyrirsætunni Rosie Huntington Whiteley eru úr nýjasta hefti Edit Magazine.
Rosie klæðist fatnaði frá hinum ýmsu hönnuðum í myndaþættinum, má þar nefna Fendi, Alberta Fenetti, Saint Laurent og Vera Wang. Hárið og förðunin er látlaus og hin náttúrulega fegurð Rosie fær að njóta sín. Æðislegur myndaþáttur, svo sumarlegur og fallegur og alveg í takt við vorið sem nú er úti.
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com