Ert þú ein af þeim sem ákveður að fylgja amerísku hefðinni og halda upp á Valentínusardaginn á morgun? Afhverju ekki að gera það líka með fötum og útliti?
Samkvæmt Glamour Magazine er t.d. vel hægt að ganga um í hjartamynstraðri flík án þess að það sé einum of eins og leikkonan Emmy Rossum sást gera í ótrúlega dúllulegum Anna Sui kjól á rauða dreglinum á dögunum.
Emma Roberts tók útlitið á nýtt level en hún sást í svörtum buxum, hnýttri skyrtu með hjartamynstri og töffaralegum ökklastígvélum.
Við getum líka glaðar tekið upp rauða varalitinn. Hann er heitur þessi misserin og má ekki vanta í snyrtibudduna! Hvort sem hann er eldrauður, með vínrauðum-, bleikum eða appelsínugulum blæ þá virkar hann.
Fléttað hár er að koma sterkt inn aftur og það er hægt að toppa útlitið með því í einhverri útgáfu ef hársídd leyfir 🙂
Njótum rómantíkarinnar á Valentínusardaginn og klæðum okkur í stíl. Svo er ekki verra að splæsa á sig sætum undirfötum!
___________________________________
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com