Valentino valdi fjórar fallegar fyrirsætur til að kynna vor/sumarlínuna 2012 en það er ljósmyndarinn Deborah Turbeville sem á heiðurinn að myndunum.
Fyrirsæturnar eru þær Bette Franke, Fei Fei Sun, Maud Welzen, Zuzanna Bijoch og karlfyrirsætan Clément Chabernaud.
Þessar rómantísku, hljóðlátu og fallegu myndir voru teknar í Mexíkó en hér sérðu fyrirsæturnar m.a. í blúndu og blómakjólum, leðurkjólum og fleiru fallegu.
Klassískar fílkur, klassísk fegurð.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.