Leðurföt hafa sjaldan verið jafn heit og þau eru nú
Nú eru leðurbuxur, pils, jakkar og allskonar fylgihlutir alveg sjóðheitir. Helst með einhverju skrauti líka. Hvort sem það er silfur eða gull skraut, virkar bæði vel. Allir helstu tískufrömuðir heims eru með leðurföt í fremstu röð þessa dagana. Enda eru fötin bæði fínleg og ofur rokkaraleg.
Eins að blanda saman efnum, hafa smá af flíkinni í leðri. Það gefur flíkinni karakter og er mjög smart.
Mjög heitt er að vera í þröngum leðurbuxum eða leggings og vera í þykkri víðri peysu við (svona kósí peysu). Eins eru háskólapeysurnar mjög heitar í dag við svona buxur. Enda eru þær ótrúlega þægilegar og mega flottar.
Kíktu á þessar og farðu inn í haustið með rokkinu…
_________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.